Barnavörur
Hjúkrunarvörur
Windi Fact Bossaventill Fyrir Börn
Lækningatæki sem hjálpar ungabörnum að losna við loft og vinnur þannig gegn ungbarnakveisu, uppþembu, vindverkju, og hægðartregðu.
3.898 kr.
Vöruupplýsingar
Windi bossaventill er lækningatæki sem hjálpar ungabörnum að losna við loft og vinnur þannig gegn ungbarnakveisu, uppþembu, vindverkju, og hægðartregðu. Windi er holur plastventill með rúnuðum legg sem notast á svipaðan hátt og endaþarmshitamælir. Á ventlinum er brún sem stjórnar því hve langt leggurinn fer inn. Því er engin hætta á að Windi skaði barnið eða valdi því óþægindum.
Notkun
1.Nuddið kvið barnsins, best er að nudda hvora hlið fyrir sig. Byrjið efst og strjúkið mjúklega niður í átt að bossanum. Endurtakið þrisvar á hvorri hlið. 2. setjið olíu eða feitt krem á ventilinn. 3. lyftið fótum barnsins og hafið þvottapoka eða klút tilbúinn við hendina. 4. Komið ventlinum fyrir í endaþarmsopi (líkt og hitamæli) Yfirleitt heyrist smá hvæs eftir nokkrar sekúndur þegar barnið losnar við loftið. Ef það gerist ekki skal fjarlægja ventilinn og endurtaka ferlið eftir nokkrar mínútur. Eftir meðferð skal fjarlægja ventil úr endaþarmsopi og henda ventlinum. Endurnotkun á sama ventlinum getur aukið sýkingarhættu. Windi má nota allt að 3 á sólarhring. Stundum þarf fleiri en eina tilraun með nokkra mínútna millibili til að ná tilætluðum árangri, það telst vera eitt og sama skiptið og má þá nota sama ventil.
Innihaldslýsing
10 stk bossaventlar.