
Vöruupplýsingar
Vapour Rub er smyrsli sem er mjög frískandi og því gott að bera á sig til að vinna gegn kvefeinkennum. Vapour Rub inniheldur náttúruleg efni unnin úr jurtaríkinu. Fyrir þá sem eru barnshafandi, eða með barn á brjósti, eða með asma er best að fá ráðleggingar hjá lækni áður en Vapour Rub er notað. Smyrslið skal geymast þar sem börn ná ekki til og undir 25 gráðu hita.
Notkun
Lítið magn af smyrslinu er borið á brjóstkassann, á bak og á hálsinn. Það á ekki að búa um svæðið með plástrum eða umbúðum eða mjög þröngum klæðnaði. Má endurtaka 3x á dag.
Innihaldslýsing
Petrolatum, Paraffinum Liquidum, Menthol, Campfor, Eucalyptus Globulus oil, Cedrus Atlantica oil, Myristica Fragranse extract, Thymol, Limnene, Linalool.