Hoppa yfir valmynd
Hjúkrunarvörur

Háls, nef og eyru

NeilMed Sinus Rinse Sachets 60 Pokar

NeilMed Sinus Rinse Refill 60 inniheldur 60 saltblöndu bréf sem henta í NeilMed SINUS RINSE™ skolflöskur.

3.798 kr.

Vöruupplýsingar

Dagleg skolun með NeilMed® SINUS RINSE™ er örugg og mun halda nefgöngunum þínum hreinum, heilbrigðum og opnum. Nota skal vatn á flöskum eða soðið vatn sem er síðan kælt þar til það er volgt eða hefur náð líkamshita.

NeilMed® er stærsti framleiðandi og birgir LVLP (Large Volume Low Pressure) saltvatnslausna fyrir nef í heiminum. NeilMed vörumerkið hjálpar til við að draga úr algengum nefeinkennum á einfaldan, öruggan, áhrifaríkan og hagkvæman hátt.

Við mælum með að nota forblönduðu Sinus Rinse saltvatnspakkana vegna þess að það tryggir að þú notir náttúruleg hráefni sem eru 99,9% hrein. Blandan er með pH jafnvægi og lyfjalaus þannig að lausnin ætti ekki að brenna eða stinga.

Innihaldslýsing

Pakkarnir innihalda blöndu af natríumklóríði og natríumbíkarbónati í USP-gæðum og eru því í hæsta gæðaflokki.