Hoppa yfir valmynd
Hreinlætisvörur

Munnþurrkur

XyliMelts Berjabragð 40stk

Viltu losna við munnþurrk allan sólarhringinn? XyliMelts eru litlar töflur sem loða við tennur, góm eða kinn og gefa frá sér xylitol (náttúrulega sykru) sem örvar munnvatnsflæði, kalsíum sem endurkalkar tennur og bíkarbónat sem hlutleysir sýrur í munninum.

2.798 kr.

Vöruupplýsingar

Munnþurrkur er þegar munnurinn framleiðir ekki nægilegt munnvatn til að halda honum rökum og þægilegum. Afleiðingar munnþurrks Þurr tilfinning í munni, slímhúðir loða saman og verða viðkvæmar Erfiðleikar við að kyngja og tala. Brennandi eða stingandi tilfinning í tungu eða góm.

Tannkul Sveppasýkingar Tannskemmdir Tannholdsbólgur Sýkingar í munnvikjum Andremma Skert bragðskyn Sár í munni Næturvernd Munnþurrkur á nóttunni getur verið sérstaklega óþægilegur þar sem sumir vakna reglulega yfir nóttina til að bleyta munninn. Þetta hefur mjög slæm áhrif á svefngæði sem getur haft víðtæk áhrif á almenna heilsu einstaklinga.

XyliMelts eru hannaðar til að halda rakastigi stöðugu í svefni án þess að trufla þig. Þær loða mjúklega við góm og leysast upp hægt og örugglega á meðan þú sefur. Þetta hjálpar bæði til við að viðhalda svefngæðum en einnig til að forðast þynningu á slímhúð og varna gegn tannskemmdum. Munnvatn gegnir ýmsum mikilvægum hlutverkum í líkamanum – það smyr munninn til að hindra núning, undirbýr fæðu fyrir kyngingu, byrjar fyrsta skref meltingar, hindrar bakteríur/sveppi og verndar tennur gegn sýrueyðingu og tannskemmdum.

Skortur á munnvatni getur því haft fjölþætt áhrif, bæði á munnheilsu og lífsgæði.

Næringargildi í 2 stk (1,5g):

  • Orka: 0kj/0kcal
  • Fita: 0
  • Þar af mettuð fita: 0
  • Kolvetni: 1
  • Xylitol: 1
  • Prótein: 0
  • Salt: 0
  • Sodium 5mg

Ábyrgðaraðili: Oralmedica

Notkun

Hvernig á að nota XyliMelts

  1. Settu töfluna á tannhold, jaxl eða góm þannig að hvíta hliðin snúi að kinn.
  2. Láttu tunguna staðsetja töfluna betur. Best er að taflan fái að vera kyrr í um 5 mínútur.

Má nota bæði dag og nótt.

Innihaldslýsing

Akasíugúmmí, Sellulósagúmmí, magnesíumsterate, natríum bíkarbónat, kalsíum bíkarpónat, náttúruleg bragðefni