Hoppa yfir valmynd
Húðvörur

Græðandi

ChitoCare Medical Scar Healing Gel 30ml

"ChitoCare® medical Sáragel fyrir ör – Ný og eldri ör. Tilvalið til meðhöndlunar eftir slys, skurðaðgerðir, keisaraskurði og lýtaaðgerðir. Stuðlar að sléttari og minna sýnilegum örum."

5.998 kr.

Vöruupplýsingar

"ChitoCare® medical Sáragel fyrir ör – Ný og eldri ör. Tilvalið til meðhöndlunar eftir slys, skurðaðgerðir, keisaraskurði og lýtaaðgerðir. Stuðlar að sléttari og minna sýnilegum örum.

Dregur úr örmyndun

Minnkar eldri ör

Myndar filmu sem ver húðina

Hvetur viðgerðarferli húðarinnar

Verndar gegn sýkingum

Dregur úr roða, kláða og sviða

ChitoCare® Medical inniheldur náttúrulegt kítósan sem er örugg, lífvirk fjölliða, einangruð úr auðlindum sjávar við Íslandsstrendur. Kítósan er undur úr hafinu og samanstendur af amínósykrum sem finnast náttúrulega í líkamanum og hefur þannig góðan lífsamrýmanleika. Kítósan myndar filmu, binst húðinni sem þarfnast verndar. Ekki þarf að fjarlægja filmuna þar sem hún brotnar niður á náttúrulegan hátt við endurnýjun húðarinnar."

Notkun

"Eftir saumatöku, berið þunnt lag á örsvæðið og látið þorna í 2 mín. Gegnsæ og teygjanleg filma myndast sem verndar húðina. Notið tvisvar á dag eða eftir þörfum. Athugið að ekki þarf að fjarlægja filmuna þar sem hún brotnar niður á náttúrulegan hátt við endurnýjun húðarinnar. Fyrir fyrstu notkun skal pumpa nokkrum sinnum úr glasinu þar til dropi kemur. Glasið er þá tilbúið til notkunar. Þvoið hendur vel áður en gelið er notað. Setjið lokið aftur á eftir notkun til að verja skammtarann."

Innihaldslýsing

Afjónað vatn, ChitoClear® kítósan, mjólkursýra, natríum bensóat. Inniheldur kítósan unnið úr rækjuskel. Ofnæmisrannsóknir sýna engin viðbrögð