Hoppa yfir valmynd
Húðvörur

Baðvörur

ICEHERBS SKIN Handsápa fjallagrös sítruslauf 300ml

Nærandi handsápa með íslenskum fjallagrösum og Aloe Vera. Ilmar af sítruslaufum og kókos. Fyrir viðkvæma húð.

1.398 kr.

Vöruupplýsingar

97,5% náttúruleg innihaldsefni. Handsápa með íslenskum fjallagrösum og Aloe Vera. Íslensk fjallagrös eru þekkt fyrir einstaka eiginleika, þau mýkja, næra og róa húðina. Í þessari nýju handsápu frá ICEHERBS SKIN sameinast fjallagrösin við Aloe Vera sem veitir húðinni djúpan raka. Sápan hreinsar á mildan hátt, er með léttum og frískandi ilm af sítruslaufum og kókos sem skilur eftir sig ferska & upplífgandi tilfinningu. Tilvalin fyrir daglega notkun . Allar ICEHERBS SKIN vörur eru án parabena, sílikona og sterkra súlfata. Við notum mild form efna sem henta húðinni betur – án málamiðlana í virkni.

VEGAN

Notkun

Þvoið hendur með 1-2 pumpum af sápu og skolið vel á eftir með volgu vatni. Fyrir betri upplifun, notaðu ICEHERBS SKIN handkrem eftir handþvott.

Innihaldslýsing

Aqua/Water/Eau, Sodium coco-sulfate, Cocamidopropyl betaine, Aloe barbadensis leaf juice (*), Cetraria islandica extract, Cocos nucifera (Coconut) oil, Decyl glucoside, Citrus aurantifolia (Lime) fruit extract, Sodium lauroyl sarcosinate, Polyglyceryl-4 caprate, Polyglyceryl-3 cocoate, Polyglyceryl-6 ricinoleate, Polyglyceryl-6 caprylate, Sodium chloride, Glycerin, Parfum [Fragrance], Citric acid, Hexyl cinnamal, Sodium phytate, Tetramethyl acetyloctahydronaphthalenes, Hexamethylindanopyran, Benzyl salicylate, Coumarin, Sodium benzoate, Methylchloroisothiazolinone, Potassium sorbate, Methylisothiazolinone.

(*) Organically farmed