Vöruupplýsingar
Hreinleiki og umhyggja
Mild og rakagefandi handsápa sem hreinsar hendurnar á áhrifaríkan hátt án þess að þurrka húðina. Formúlan inniheldur kítósan, kollagen og kísil – náttúruleg hráefni úr hafinu sem næra húðina, viðhalda raka og hreinsa á áhrifaríkan hátt án þess að fjarlægja náttúrulegar rakvarnir húðarinnar. Hendurnar verða mjúkar, hreinar og öðlast endurnærða tilfinningu eftir hverja notkun.
INNSÆI ber hreinan og róandi ilm sem vekur skilningarvitin. Ocean Breeze, innblásinn af tærri hafgolunni við Íslandsstrendur, mætir mildum og grænum tónum af sítrónugrasi. Við hverja notkun fyllist rýmið af fersku og róandi andrúmslofti sem minnir á sjávarloft og kyrrð náttúrunnar.
96% náttúruleg innihaldsefni.
Notkun
Hentar til daglegrar notkunar. Berið í raka lófa og nuddið þar til mjúk froða myndast og skolið síðan vel.
Fyrir hvern: Handsápan hentar öllum húðgerðum og er sérstaklega góð fyrir þurra og viðkvæma húð.
Innihaldslýsing
AQUA, AMMONIUM LAURYL SULFATE, GLYCERYL OLEATE, GLYCERIN, SODIUM COCOYL ISETHIONATE, SORBITAN CAPRYLATE, PANTHENOL, COCO-GLUCOSIDE, SODIUM PCA, CHITOSAN, HYDROLYZED COLLAGEN, SILICA, CAPRYLYL/CAPRYL GLUCOSIDE, BENZOIC ACID, CITRIC ACID, SODIUM GLUCONATE, SODIUM COCOYL GLUTAMATE, PANTOLACTONE, LACTIC ACID, GLYCERYL CAPRYLATE, POLYGLYCERYL-6 OLEATE, SODIUM SURFACTIN, TOCOPHEROL, SODIUM BENZOATE, HYDROGENATED PALM GLYCERIDES CITRATE, PARFUM, CYMBOPOGON FLEXUOSUS (LEMONGRASS) LEAF OIL, CITRAL, LIMONENE, LINALOOL, LINALYL ACETATE, PINUS MUGO



