Húðvörur
Body Lotion
ChitoCare Innsæi Renew Body Lotion 100ml
Mýkjandi og rakagefandi líkamskrem sem nærir húðina og róar. Það skilur eftir silkimjúka og endurnærða húð og stuðlar að heilbrigðum ljóma. Kremið hentar öllum húðgerðum, einnig viðkvæmri húð.
3.999 kr.
Vöruupplýsingar
Næring og ró Mýkjandi og rakagefandi líkamskrem sem nærir húðina og róar. Kremið skilur eftir mjúka, endurnærða húð og stuðlar að heilbrigðum ljóma. Kítósan, kollagen og kísill vinna saman að því að styrkja húðina, viðhalda raka og skilja eftir húð sem finnur fyrir jafnvægi og vellíðan. Kremið styður við náttúrulegt viðgerðarferli húðarinnar svo hún fær aukinn styrk, mýkt og fallegan ljóma.
INNSÆI ber hreinan og róandi ilm sem vekur skilningarvitin. Ocean Breeze, innblásinn af tærri hafgolunni við Íslandsstrendur, sameinast mildum og grænum tónum af sítrónugrasi. Samspil ilmanna veitir róandi tilfinningu og skilur eftir hreint og notalegt andrúmsloft sem minnir á ferskt sjávarloft og kyrrð náttúrunnar.
98% náttúruleg innihaldsefni. Prófað af húðlæknum.
Notkun
Berið kremið á þurra húð og nuddið mjúklega í húðina með hringlaga hreyfingum til að næra, kæla og róa.
Fyrir hvern: Kremið hentar öllum húðgerðum, einnig viðkvæmri og exemkenndri húð.
Innihaldslýsing
AQUA, SQUALANE, CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, CETEARYL ALCOHOL, GLYCERIN, PROPANEDIOL, PRUNUS AMYGDALUS DULCIS (ALMOND) OIL, COCOS NUCIFERA (COCONUT) OIL, SCLEROCARYA BIRREA (MARULA) SEED OIL, CAFFEINE, RHUS VERNICIFLUA PEEL CERA, CHITOSAN, ALOE BARBADENSIS LEAF JUICE, HYDROLYZED COLLAGEN, SILICA, HELIANTHUS ANNUUS (SUNFLOWER) SEED OIL, TETRADECANE, TOCOPHEROL, POLYSORBATE 60, SODIUM LEVULINATE, CETYL ALCOHOL, SODIUM ANISATE, HYDROXYETHYLCELLULOSE, SODIUM GLUCONATE, CITRIC ACID, LACTIC ACID, POTASSIUM SORBATE, SODIUM BENZOATE, PARFUM, CYMBOPOGON FLEXUOSUS (LEMONGRASS) LEAF OIL, ACETYL CEDRENE, ALPHA-ISOMETHYL IONONE, BETA-CARYOPHYLLENE, CITRAL, CITRONELLOL, CITRUS AURANTIUM PEEL OIL, CITRUS LIMON PEEL OIL, EUCALYPTUS GLOBULUS OIL, GERANIOL, GERANYL ACETATE, LAVANDULA OIL/EXTRACT, LIMONENE, LINALOOL, LINALYL ACETATE, MENTHOL, PINENE, PINUS MUGO, TETRAMETHYL ACETYLOCTAHYDRONAPHTHALENES

