Lausasölulyf
Nefúðar
Nasogen, nefúði 1 mg/ml 10 ml
Lyfið er ætlað til skammtíma meðferðar við stíflu í nefi, t.d. vegna kvefs.
1.005 kr.
Vöruupplýsingar
Virka efnið í Nasogen 1 mg/ml nefúða er xylometazolin hýdróklóríð, sem er efni sem minnkar þrota í slímhúðum í nefi og hálsi og auðveldar sjúklingum með kvef að anda í gegnum nefið. Xylometazolin veldur almennt ekki ertingu í slímhúð, jafnvel hjá sjúklingum með mjög viðkvæma slímhúð.
Notkun
Notið lyfið alltaf eins og læknirinn eða lyfjafræðingur hefur sagt til um. Ef ekki er ljóst hvernig nota á lyfið skal leita upplýsinga hjá lækninum eða lyfjafræðingi. Ráðlagður skammtur er: Fullorðnir og börn 10 ára og eldri: 1 úðun (0,14 ml) í hvora nös, eftir þörfum, mest þrisvar á dag. Eftir notkun lyfsins verður að bíða í a.m.k. 6 klst. áður en næsti skammtur er notaður. Lyfið má nota mest 7 daga í senn.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá
Innihaldslýsing
- Virka innihaldsefnið er xylometazolin hýdróklóríð.
- 1 ml af lausn inniheldur 1,0 mg af xylometazolin hýdróklóríði.
- Önnur innihaldsefni eru: Sítrónusýrueinhýdrat, natríumsítrattvíhýdrat, glýseról 85% og vatn fyrir stungulyf.