Lausasölulyf
Hósti
Septabene eucalyptus, sogtfl 0 16 stk
Septabene eucalyptus munnsogstafla er bólgueyðandi, verkjastillandi og sýkladrepandi lyf til staðbundinnar notkunar í munnhol. Septabene eucalyptus sótthreinsar munn og háls og dregur úr bólgueinkennum í hálsi, svo sem verk, roða, þrota, hita og skertri virkni. Septabene eucalyptus er ætlað fullorðnum, unglingum og börnum eldri en 6 ára til meðferðar á einkennum hálsbólgu sem tengjast vægum sýkingum í munni og hálsi.
2.195 kr.
Vöruupplýsingar

Notkun
Notkun: Fullorðnir: Ráðlagður skammtur er 3−4 munnsogstöflur á dag. Leysa á eina munnsogstöflu hægt upp í munninum á 3 til 6 klukkustunda fresti. Unglingar eldri en 12 ára: Ráðlagður skammtur er 3−4 munnsogstöflur á dag. Leysa á eina munnsogstöflu hægt upp í munninum á 3 til 6 klukkustunda fresti. Börn á aldrinum 6 til 12 ára: Ráðlagður skammtur er 3 munnsogstöflur á dag. Leysa á eina munnsogstöflu hægt upp í munninum á 3 til 6 klukkustunda fresti. Fullorðinn þarf að fylgjast með notkun munnsogstaflna hjá börnum á aldrinum 6 til 12 ára. Börn yngri en 6 ára mega ekki nota Septabene eucalyptus. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá
Innihaldslýsing
Virku innihaldsefnin eru benzydaminehydrochloride og cetylpyridiniumchloride.