Hoppa yfir valmynd
Lausasölulyf

Nefúðar

Otrivin ukonserveret, nefúði 1 mg/ml 10 ml

Otrivin er notað við nefstíflu vegna kvefs og bólgu í ennis- og kinnholum. Otrivin verkar þannig að það dregur saman háræðarnar í bólginni slímhúð nefsins. Við það minnkar stíflan í nefinu og loftstreymið um nefið batnar. Verkun hefst eftir fáeinar mínútur og varir í allt að 12 klukkustundir.

1.098 kr.

Vöruupplýsingar

Otrivin ukonserveret nefúði, lausn inniheldur xýlómetazólínhýdróklóríð. Til notkunar í nef, við bólgum og aukinni slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki. Ætlað fullorðnum og börnum eldri en 12 ára.

Notkun

Fullorðnir og börn eldri en 12 ára: 1 úði í hvora nös 3 sinnum á sólarhring eftir þörfum, að hámarki í 10 sólarhringa. Ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös á sólarhring. Notkunarleiðbeiningar: Snýttu þér ávallt áður en þú notar nefúðann. Fyrir fyrstu notkun þarf að virkja úðadæluna með því að úða 4 sinnum út í loftið. Eftir það er úðadælan jafnan tilbúin til daglegrar notkunar á meðferðartíma. Haltu flöskunni lóðrétt. Hallaðu höfðinu örlítið fram. Haltu fyrir aðra nösina með fingrinum. Settu stútinn á nefúðaflöskunni í hina nösina. Ýttu hratt á úðadæluna um leið og þú andar inn um nefið. Endurtaktu þetta í hina nösina.

Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá