Hoppa yfir valmynd
Lausasölulyf

B-vítamín

Betolvan, filmhtfl 1 mg 105 stk

Fyrirbyggjandi meðferð gegn og meðferð við blóðkornafári (pernicious anaemia) og öðrum kvillum vegna B12-vítamínskorts.

2.198 kr.

Vöruupplýsingar

Fyrirbyggjandi meðferð gegn og meðferð við blóðkornafári (pernicious anaemia) og öðrum kvillum vegna B12-vítamínskorts.

Notkun

Skammtar Meðferð við skorti: Venjulega 1-2 töflur á dag þar til skorturinn hefur verið leiðréttur að fullu. Síðan viðhaldsskammtur. Ef taugakvilli er staðfestur, eða grunur er um slíkt, skal meðferð vera með stungulyfi. Viðhaldsskammtar/fyrirbyggjandi meðferð: Venjulega 1 tafla á dag. Sérstakir sjúklingahópar Aldraðir sjúklingar Ekki er nauðsynlegt að breyta skömmtum. Sjúklingar með skerta nýrnastarfsemi Yfirleitt er ekki nauðsynlegt að breyta skömmtum. Hjá sjúklingum með alvarlega skerta nýrnastarfsemi á að mæla B12-vítamín í sermi reglulega og minnka skammta ef þess er þörf (sjá kafla 4.4). Sjúklingar með skerta lifrarstarfsemi Ekki hefur verið lagt mat á öryggi og verkun við notkun lyfsins handa sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi. Börn Ekki hefur verið sýnt fram á öryggi og verkun Betolvan hjá börnum

Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá

Innihaldslýsing

"1 tafla inniheldur 1 mg af cýanókóbalamín. Hjálparefni: Mannitól Kartöflusterkja Forhleypt sterkja Örkristallaður sellulósi Magnesíumsterat Sterínsýra Pólývinýl alkóhól, vatnsrofið að hluta til Makrógól Títantvíoxíð (litarefni E 171) Rautt járnoxíð (litarefni E 172) Gult járnoxíð (litarefni E 172) Talkúm"