Hoppa yfir valmynd
Lausasölulyf

Nefúðar

Otrivin Junior ukonserveret, nefúði 0,5 mg/ml 10 m

Otrivin Junior er notað við nefstíflu vegna kvefs og bólgu í ennis- og kinnholum

1.098 kr.

Vöruupplýsingar

Otrivin Junior verkar þannig að það dregur saman háræðarnar í bólginni slímhúð nefsins. Við það minnkar stíflan í nefinu og loftstreymið um nefið batnar. Verkun hefst eftir fáeinar mínútur og varir í allt að 12 klukkustundir. Otrivin Junior þolist venjulega vel, einnig hjá sjúklingum með viðkvæma slímhúð.

Otrivin Junior er ætlað börnum á aldrinum 2-11 ára. Otrivin Junior er ekki ætlað börnum yngri en 2 ára.

Notkun

Börn á aldrinum 2-5 ára: Undir eftirliti fullorðins aðila. 1 úði í hvora nös 1 til 2 sinnum á sólarhring (á 8-10 tíma fresti) er venjulega nægilegt. Hámarksmeðferðartími er 10 sólarhringar. Ekki úða oftar en að hámarki 3 sinnum í hvora nös á sólarhring.

Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá

Börn á aldrinum 6-11 ára: Undir eftirliti fullorðins aðila. 1-2 úðar í hvora nös, 2 til 3 sinnum á sólarhring að hámarki í 10 sólarhringa. Ekki úða oftar en að hámarki 3 sinnum í hvora nös á sólarhring.

Innihaldslýsing

Virkt efni: Xýlómetazólínhýdróklóríð (1 úði inniheldur 0,035 mg). – Önnur innihaldsefni: Natríumdíhýdrógenfosfat-díhýdrat, dínatríumfosfat-dódekahýdrat, natríumklóríð, natríumedetat og hreinsað vatn.