Vöruupplýsingar
Fungoral er hársápa sem er notuð við flösu. Flasa orsakast af sveppinum Malassezia sem er venjulega til staðar í hársverðinum. Yfirleitt veldur hann engum óþægindum en stundum getur húðin orðið fyrir áhrifum. Þá myndast flasa og einkenni eins og kláði og flögnun koma fram. Fungoral inniheldur 20 mg/ml af ketókónazóli.
Notkun
Notið Fungoral hársápuna tvisvar sinnum í viku fyrstu 2-4 vikurnar til að slá á einkennin. Síðan má nota Fungoral einu sinni í viku eða eftir þörfum til að koma í veg fyrir að einkenni komi fram að nýju.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá
Innihaldslýsing
1 ml af hársápu inniheldur: Ketoconazol 20 mg.