Hoppa yfir valmynd
Lausasölulyf

Verkjalyf

Ibufen töflur 200 mg 20 stk

Íbúfen inniheldur virka efnið ibuprofen og er bólgueyðandi, notaðað við vægum til meðalmiklum verkjum eins og höfuðverk, einnig mígreni höfuðverk, tannpínu, tíðaverkjum og hita.

515 kr.

Vöruupplýsingar

Íbúfen inniheldur virka efnið ibuprofen og tilheyrir flokki lyfja sem kölluð eru NSAID-lyf (bólgueyðandi lyf sem ekki eru sterar) og draga úr verkjum, bólgum og hita. Íbúfen filmuhúðaðar töflur eru notaðar við vægum til meðalmiklum verkjum eins og höfuðverk, einnig mígreni höfuðverk, tannpínu, tíðaverkjum og hita. Börn 12 ára og yngri eiga ekki að nota Íbúfen nema í samráði við lækni. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára. Aldraðir skulu leita ráða hjá lækni áður en lyfið er notað.

Markaðsleyfishafi Actavis Group PTC ehf.

Notkun

Fullorðnir skulu ekki taka Íbúfen í meira en 7 daga án samráðs við lækni. Börn og unglingar skulu ekki taka Íbúfen í meira en 3 daga án samráðs við lækni. Skammtastærð íbúprófens fer eftir aldri sjúklings og þyngd.
Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar, varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað.

Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá

Innihaldslýsing

Íbúfen inniheldur virka efnið ibuprofen.

Hjálparefni: Töflukjarni: Örkristallaður sellulósi, Vatnsfrí kísilkvoða, Hýdroxýprópýlsellulósi, Natríumlárýlsúlfat, Natríumkroskarmellósi, Talkúm, Filmuhúð: (Opadry (hvítt) 06B28499), Hýprómellósi, Makrógól 400, Títantvíoxíð (E171).