
Snyrtivörur
Áhöld
SHISEIDO Eyelash Curler
Vinsælasti augnhárabrettarinn sem krullar augnhárin og heldur krullunni allan daginn.
5.598 kr.
Vöruupplýsingar
Einn mest seldi augnhárabrettari í heiminum en hann krullar augnhárin vel án þess að skaða þau. Sílíkon-púðinn er sérstaklega mjúkur og formið leggst vel að augum til að bretta öll hárin - einnig þau stystu. Brettarinn nær hárunum nálægt rótinni og veitir fallega krullu án þess að klemma þau of mikið.
Einn auka sílikonpúði fylgir en við mælum með að skipta honum út á 6 mánaða fresti. Hægt er að kaupa auka sílikonpúða í Shiseido-brettarann.
Notkun
Horfðu niður og leggðu augnhárabrettarann að auganu. Passaðu að öll augnhárin liggi á milli brettarans og að engin húð sé fyrir. Þrýstu þrisvar sinnum stutt til að krulla augnhárin þín. Til að hámarka krullu getur þú fært brettaran aðeins fjær auganu og endurtekið öll skref.