Snyrtivörur
Farðagrunnur
Clarins SOS Primer Radiance 30ml
Farðagrunnurinn sem bjargar þér á ögurstundu sem birtir yfirbragð húðarinnar og mætir þörfum hennar.
6.398 kr.
Vöruupplýsingar
Þessar formúlur eru meira en einungis farðagrunnar, þær framkalla fallega ásýnd húðarinnar – jafnvel án farða! Formúlurnar birta samstundis upp yfirbragð húðarinnar og aðlaga sig að þörfum hennar. Leyndarmál þeirra: síuáhrif, plöntuauðguð formúla og örverusamsetning formúlunnar, sem þróuð var á rannsóknarstofum okkar til að stuðla að jafnvægi húðarinnar á hverjum degi. 24 klukkustunda rakagjöf. „High-Lumitech“-blanda: leiðréttir samstundis, birtir og endurlífgar yfirbragð húðarinnar. Clarins-mengunarvörn. Niðurstöður: Húðin verður fallegri dag eftir dag og endurheimtir jafnvægi, hvert sem húðvandamál þitt er.
Húð í jafnvægi. Ljómandi yfirbragð húðarinnar með hinum alhliða ljósa tóni. Úthvílt og geislandi yfirbragð húðarinnar með hinum rósalitaða tóni. Jafnari ásýnd húðarinnar með hinum ferskjulitaða tóni. Sléttara yfirbragð húðarinnar með hinum græna tóni. Mattari ásýnd húðarinnar með mattandi áferðinni.
Konur fullyrða að ber húð þeirra sé 43% bjartari þökk sé hinum alhliða ljósa farðagrunni.* Konur fullyrða að ber húð þeirra sé 41% meira ljómandi þökk sé rósalitaða farðagrunninum.** Konur fullyrða að ber húð þeirra sé 46% sléttari þökk sé ferskjulitaða farðagrunninum.*** Konur fullyrða að að húðroði minnki um 39% þökk sé græna farðagrunninum.**** Konur fullyrða að ber húð þeirra sé 42% mattari þökk sé mattandi farðagrunninum.***** *Sjálfsmat – 108 konur – 28 dagar. **Sjálfsmat – 103 konur – 28 dagar. ***Sjálfsmat – 105 konur – 28 dagar. ****Sjálfsmat – 110 konur – 28 dagar. *****Sjálfsmat – 103 konur – 28 dagar.
Notkun
Berðu yfir allt andlitið eftir hefðbundna húðumhirðu. Notaðu farðagrunninn einan og sér eða blandaðu honum saman við fljótandi farða frá Clarins.





