Hoppa yfir valmynd
Snyrtivörur

Naglalökk

NAILBERRY Galactic

Djúpur og rjómakenndur grár litur með ofurfínu glitri kallar fram heillandi áferð sem minnir á stjörnubjartan næturhimininn. Áberandi glitrandi með háglansandi áferð, mjúkur, fágaður upplífgandi litur. Þennan flotta hlutlausa lit er hægt að nota á daginn við dagleg störf og einnig til að undirstrika glæsilegt útlit þegar farið er út á kvöldin.

2.998 kr.

Vöruupplýsingar

Viltu skjótast upp á stjörnuhimininn með haust – vetrar línunni sem við köllum „Himnesku línuna“ (Celestial Collection). Himneskt úrval af djúpum og draumkenndum litum og stórkostlegu glitrandi yfirlakki sem mun setja mark sitt á árstíðina sem er framundan. Glæsilegir, eftirtektarverðir og algjörlega einstakir litir sem munu leysa úr læðingi leyndardóma og töfra dagsins, kvöldsins, stemmingarinnar og tilefnisins. Þessir nýju litir hressa upp á grámyglulegan hversdaginn með yfirnáttúrulegri, upplífgandi litadýrð sem er innblásin af sköpunarkrafti og gefur lífinu lit á þessum dimma árstíma.Eins og alltaf þá mun okkar frábæra naglalakk og breiði flati burstinn tryggja einstaka, jafna og fullkomna lökkun sem mun skila sér í gljáandi áferð og góðri endingu.

Nailberry naglalökkin eru hugarsmíð Soniu Hully. Hún ákvað strax í upp­hafi að gefa engan af­slátt, hvorki af heilsunni né hátískunni. Í dag hafa Nailberry naglalökkin öðlast sess sem hátískuvara sem notast er við á tískuvikum í stórborgum. En þú get­ur líka keypt þau á skemmtilegustu jógastöðunum t.d. í London. Það er fallegt að bera naglalakk sem andar og nærir. Nailberry naglalökkin eru án 12 skaðlegustu efnanna, vegan, næra, anda og hleypa í gegn raka og súrefni. Þau hafa hlotið hina kærkomnu vottun PETA “cruelty free”. L’Oxygéné línan frá Nailberry, eru sannkölluð lúxus naglalökk. Þau hleypa í gegn raka og súrefni. Eru eiturefnalaus, VEGAN, næra, anda, endast og eru framúrskarandi smart. Fagfólkið keppist um á dásama Nailberry L’Oxygéné. Þau hafa hlotið hina kærkomnu vottun PETA “cruelty free”.

Notkun

Einföld ráð til að láta naglalakkið endast 1 – Þvo á sér hendurnar, setja spritt eða naglalakkahreinsir í bómull og strjúka af nöglinni til þess að hreinsa í burt alla fitu og óhreinindi. 2 – Lagfæra lengdina á nöglunum ásamt ójöfnum, setja þunna umferð af undirlakki eða næringu sem fyrstu umferð 3 – 2 þunnar umferðir af Nailberry naglalakki 4 – Setja yfirlakk sem gæti verið Fast dry gloss eða Shine & Breathe.