Hoppa yfir valmynd
Snyrtivörur

Augabrúnir

Refectocil BeautyLash Brow Glow

BEAUTYLASH BROW GLOW: Fyrsta augabrúnagelið fyrir náttúrulega glansandi augabrúnir

3.498 kr.

Vöruupplýsingar

BEAUTYLASH BROW GLOW: Fyrsta augabrúnagelið fyrir náttúrulega glansandi augabrúnir BROW GLOW augabrúnagelið hjálpar við að temja fíngerðustu hárin fyrir glansandi, sléttar augaubrúnir. Hefðbundnar mótunarvörur eins og gel eða vax skilja eftir sig matta áferð en BROW GLOW gefur augabrúnunum fallegan ljóma fyrir heilbrigt og náttúrulegt útlit. Glansinn kemur fram strax við ásetningu, helst á allan daginn og auðvelt er að bæta á hann ef þörf krefur, án þess að gelið molni. BROW GLOW er einstakt á markaðnum og sameinar sterka festingu og náttúrulegan glans. Sérstök formúla gelsins og hönnun burstans sem bæði er með lengri og styttri hlið, gerir kleift að skapa persónulegt útlit – allt frá mildum GLOW og LUMINOUS ljóma til djörfustu WET-LOOK áferðar. Áhrifin koma fram á örfáum sekúndum. Auk þess veitir gelið hámarks vörn fyrir lit og áferð eftir litun eða „lamination“. • Mótun: Glært gel sem veitir sterka festingu allan daginn. • Litavörn: Tryggir hámarks vörn fyrir litaðar augabrúnir. • Umhirða: Nýstárleg innihaldsefni veita raka samstundis og styrkja hárin til lengri tíma.

Notkun

Berðu gelið á með einni hlið burstans og mótaðu með hinni. Fyrir enn meiri áhrif, settu nokkur lög. Hristist fyrir notkun.

Innihaldslýsing

Aqua, Alcohol denat., Vinyl Caprolactam/VP/Dimethylaminoethyl Methacrylate Copolymer, Phytantriol, Glycerin, PVP, Parfum, Tetramethyl Acetyloctahydronaphthalenes, Linalyl Acetate, Terpineol, Dimethyl Phenethyl Acetate.