Hoppa yfir valmynd
Snyrtivörur

Ilmir Dömu

Chloé Nomade Jardin d´Egypte edp

Chloé Nomade Jardin d’Égypte flytur okkur aftur til heimalands stofnanda Chloé, Gaby Aghion, í þriðja kafla Nomade Égypte sögunnar. Ilmurinn heiðrar papýrusplöntuna, tákn eilífs lífs og endurnýjunar. Ilmurinn er ákafur og líflegur Eau de Parfum fyrir konur, innblásinn af gróskumiklum garði. Hann opnast með ferskum, sólríkum tónum sem fléttast saman við hunangsmjúk blæbrigði. Hann þróast í ríkulegan kyphi ilm og endar í ómótstæðilegu samspili viðar- og resínnóta.

14.798 kr.

Vöruupplýsingar

Chloé Nomade Jardin d’Égypte flytur okkur aftur til heimalands Chloé stofnandans Gaby Aghion. Í þriðja kafla Nomade Égypte sögunnar heiðrar þessi nýi Eau de Parfum fyrir konur papýrus plöntuna, heilaga plöntu Forn Egypta sem táknar eilíft líf og endurnýjun. Ilmurinn opnast með sólríkum tónum kassíublómsins sem fléttast mjúklega saman við grænan ferskleika papýrusar og vekja upp mynd af sumargarði í morgunsárið. Hunangsmjúkir og ríkulegir tónar af sólþurrkuðum döðlum og safaríkum fíkjum dýpka ilminn áður en hann þróast í djúpan kyphi ilm. Forna, alkemíska blöndu af ilmolíum, þar sem kryddaður kanilbörkur mætir kremkenndum sandelviði og resínríkri myrru. Að lokum sameinast sérhannaður solarwood akord, flauelsmjúkri sandelviðsolíu og moskuskenndu ambrette absolút sem situr eftir með ómótstæðilegri næmni og dýpt. Ilmhönnuðurinn Caroline Dumur sótti innblástur í gróskumikinn garð fullan af fersku grænmeti, sætum blómum og ávaxtatrjám. Ilmurinn kemur í hinni táknrænu Chloé flösku, nú skreytt líflegri grænni fléttu í lit egypsku papýrusplöntunnar.

Innihaldslýsing

ALCOHOL DENAT., PARFUM/FRAGRANCE, AQUA/WATER/EAU, TETRAMETHYL ACETYLOCTAHYDRONAPHTHALENES, ETHYLHEXYL SALICYLATE, BENZYL SALICYLATE, VANILLIN, HEXAMETHYLINDANOPYRAN, LINALOOL, CITRUS AURANTIUM BERGAMIA (BERGAMOT) PEEL OIL, COUMARIN, ALPHA-ISOMETHYL IONONE, GERANYL ACETATE, JUNIPERUS VIRGINIANA OIL, BUTYL METHOXYDIBENZOYLMETHANE, GERANIOL, LINALYL ACETATE, LIMONENE, HYDROXYCITRONELLAL, PINENE, ALCOHOL, ROSE KETONES, ISOEUGENYL ACETATE, HEXADECANOLACTONE, TRIS(TETRAMETHYLHYDROXYPIPERIDINOL) CITRATE, EUGENOL, BETA-CARYOPHYLLENE, SANTALOL, CITRUS AURANTIUM FLOWER OIL, TRIMETHYLCYCLOPENTENYL METHYLISOPENTENOL, BENZYL BENZOATE, BENZYL ALCOHOL, CITRAL, TERPINEOL, BENZALDEHYDE, TERPINOLENE, YELLOW 6 (CI 15985), YELLOW 5 (CI 19140).