Hoppa yfir valmynd
Snyrtivörur

Naglalökk

NAILBERRY Fashionista

Nailberry naglalökkin eru eiturefnalaus, vegan, næra, anda og hleypa í gegn raka og súrefni. Þau hafa hlotið hina kærkomnu vottun PETA “cruelty free”.

2.998 kr.

Vöruupplýsingar

Nailberry naglalökkin eru hugarsmíð Soniu Hully. Hún ákvað strax í upp­hafi að gefa engan af­slátt, hvorki af heilsunni né hátískunni. Í dag hafa Nailberry naglalökkin öðlast sess sem hátískuvara sem notast er við á tískuvikum í stórborgum. En þú get­ur líka keypt þau á skemmtilegustu jógastöðunum t.d. í London. Það er fallegt að bera naglalakk sem andar og nærir.

L’Oxygéné línan frá Nailberry, eru sannkölluð lúxus naglalökk. Þau hleypa í gegn raka og súrefni. Eru eiturefnalaus, VEGAN, næra, anda, endast og eru framúrskarandi smart. Fagfólkið keppist um á dásama Nailberry L’Oxygéné. Þau hafa hlotið hina kærkomnu vottun PETA “cruelty free”.

Notkun

Einföld ráð til að láta naglalakkið endast 1 – Þvo á sér hendurnar, setja spritt eða naglalakkahreinsir í bómull og strjúka af nöglinni til þess að hreinsa í burt alla fitu og óhreinindi. 2 – Lagfæra lengdina á nöglunum ásamt ójöfnum, setja þunna umferð af undirlakki eða næringu sem fyrstu umferð 3 – 2 þunnar umferðir af Nailberry naglalakki 4 – Setja yfirlakk sem gæti verið Fast dry gloss eða Shine & Breathe.

Innihaldslýsing

L’Oxygéné eru án 12 skaðlegustu efnanna sem almennt er að finna í naglalökkum. Þau eru: Formaldehýð Túlín Kemísk kamfóra DPB (skaðleg þalöt) Formaldehýð kvoðu (resin), xylene, ethyl tosylamide, triphenyl phosphate, alkóhóls, parabena, dýraafurða & glútens.