Hoppa yfir valmynd
Vítamín

Fitusýrur

Dropi Þorskalýsi 170ml

Dropi er fyrsta og eina kaldunna lýsið í heiminum, búið til úr nýveiddum fiski og engu öðru. Engin aukaefni og engin gerviefni. Þess er einfaldlega engin þörf.

4.598 kr.

Vöruupplýsingar

Dropi þorskalýsi er eingöngu kaldunnið til þess að varðveita alla náttúrulega eiginleika olíunnar. Olían inniheldur hreina og náttúruleg vítamín A- og D, ásamt omega-3 og aðrar fitusýrur. Engin gerviefni eða viðbætt vítamín er bætt við olíuna. Dropi er eingöngu framleiddur úr ferskri þorsklifur úr Atlantshafsþorski (Gadus morhua). Fiskurinn er keyptur af fiskmarkaði, en hann er veiddur af dagróðrarbátum undan Vestfjarðarmiðum, sem eru ein hreinustu fiskimið í Atlantshafi.

Þessi gæðavara er framleidd samkvæmt alþjóðlega gæðastaðlinum HACCP, en honum er ætlað að tryggja öryggi matvæla.

Framleiðsla Dropa er byggð á fornri aðferð, en er þó framleidd á skemmri tíma en áður fyrr. Lágt hitastig er notað allt framleiðsluferlið og fer hitinn aldrei yfir 42°C. Við þetta lága hitastig viðhaldast náttúrulega vítamín og næringarefni og því flokkast Dropi sem jómfrúarolía og hráfæði.

Þorsklifrin Árla morguns fara sjómenn í Bolungarvík út á haf á bátum sínum með beitningarbala. Sumir með bala sem beittir eru í landi daginn áður, aðrir með bala sem beittir eru í vélum um borð. Eftir veiði dagsins halda bátarnir í heimahöfn þar sem ferskum aflanum er landað. Fiskurinn er verkaður og seldur á fiskmarkaði, þaðan sem við kaupum lifrina. Við fáum hana svo afhenta ferska á ís. Afurðin er því fersk allt vinnsluferlið.

100% náttúruleg framleiðsla Allt vinnsluferlið á Dropa olíu er styttra en almennt þekkist í framleiðslu á þorskalýsi í heiminum. Við notum lágt hitastig, undir 42°C til þess að viðhalda eiginleikum lifrarinnar. Þá er framleiðslan háð náttúrulegum eiginleikum eins og veðri, aðstæðum á fiskimiðum og stofni Atlantshafsþorsksins. Þar sem við notum eingöngu ferska lifur getum við ekki ákveðið framleiðslu með löngum fyrirvara, þar sem veður þarf að vera hagstætt svo sjómenn nái að stunda sjóinn.

Notkun

1 tsp (5ml) á dag 34 skammtar í flösku

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Ábyrgðaraðili: True Westfjords ehf

Innihaldslýsing

Cod liver oil