Hoppa yfir valmynd
Vítamín

Kvenbætiefni

Huemeno Me 30stk

huemeno® Me er aðalvaran í línunni og styður við grunnþætti heilsunnar. huemeno® Me er fyrsta val fyrir heildræn áhrif á meltingu, þarmaflóru, efnaskipti og flóru legganganna​ auk þess að stuðla að reglu á hormónastarfsemi, eðlilegri starfsemi taugakerfisins og stuðla að minni þreytu og lúa.

6.998 kr.

Vöruupplýsingar

huemeno® Me var þróuð til að styðja við grunnþætti heilsunnar – með fáum, völdum innihaldsefnum sem vinna saman á öflugan hátt.

huemeno® Me er ekki lausn fyrir einstaka einkenni breytingaskeiðsins – heldur stoð sem byggir grunn að betri heilsu, orku og vellíðan til framtíðar. huemeno® hefur það að markmiði að styðja við heilsu og vellíðan kvenna á breytingaskeiði og á árunum sem fylgja, auk þess að leggja okkar af mörkum til að opna umræðuna um þetta mikilvæga tímabil í lífinu. huemeno® er fyrsta íslenska vörumerkið sem ber MTick® merkið - fyrsta alþjóðlega táknið sem sýnir að vara teljist „menopause-friendly“, þ.e. henti sérstaklega konum á og í kringum breytingaskeiðið.

huemeno® Me er aðalvaran í línunni og er fjölvirkur stuðningur fyrir konur. Varan getur stuðlað að: jafnvægi í þarmaflóru og meltingu efnaskiptaheilbrigði og orkuvinnslu og dregið úr þreytu og lúa örverujafnvægi í leggöngum og reglu á hormónastarfsemi og stuðlað að eðlilegri starfsemi taugakerfisins Lykilinnihaldsefni: Þrír klínískt prófaðir SynbÆctive® góðgerlastofnar (probiotics) Inúlín og FOS forgerlar (prebiotics) B6 vítamín B1 vítamín huemeno® Me er fyrsta val fyrir heildræn áhrif á meltingu, þarmaflóru, efnaskipti og flóru legganganna auk þess að stuðla að reglu á hormónastarfsemi, eðlilegri starfsemi taugakerfisins og stuðla að minni þreytu og lúa.

huemeno® – skýr nálgun fyrir framtíðina

huemeno® leggur áherslu á nálgun sem tekur mið af því hve einstaklingsbundin og fjölbreytt upplifun breytingaskeiðsins getur verið með öllum þeim fjölda einkenna sem geta birst okkur á mismunandi hátt. Við vitum að engin ein lausn hentar öllum – en teljum þó að allar konur ættu að huga að grunnstoðum heilsunnar, sérstaklega á þessu tímabili lífsins, ekki síst til að viðhalda góðri heilsu og atorku á árunum sem fylgja.

Notkun

Takið 1 hylki á dag með vatni, á milli máltíða

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Ábyrgðaraðili: Humeno ehf

Innihaldslýsing

Innihald í einu hylki: Efni Magn % NRV* SynbÆctive® Lactiplantibacillus plantarum PBS067           6 × 10⁹ CFU** ** SynbÆctive® Lactobacillus acidophilus PBS066 – ** SynbÆctive® Limosilactobacillus reuteri PBS072 – **

Inúlín 100 mg ** FOS (frúktóóligósakkaríðar) 100 mg ** B6 vítamín 1,6 mg 114% B1 vítamín (þíamín) 0,22 mg 20%

  • Viðmiðunargildi næringarefna samkvæmt reglugerð ESB 1169/2011. ** NRV ekki skilgreint. *** CFU = Colony Forming Units.

Innihaldsefni:

Inúlín; frúktóóligósakkaríðar (FOS); hylki (gljáefni: hýdroxýprópýlmetýlsellulósi; þykkingarefni: gellangúmmí); maíssterkja;Limosilactobacillus reuteri PBS072 (DSM 25175); Lactobacillus acidophilus PBS066 (DSM 24936); Lactiplantibacillus plantarum PBS067 (DSM 24937); maltódextrín; magnesíumsölt fitusýra (kekkjavarnarefni); B6 vítamín (pýridoxínhýdróklóríð);B1 vítamín (þíamínhýdróklóríð).

Inniheldur ekki soja, glúten, laktósa eða erfðabreytt efni. Hentar grænmetisætum og grænkerum. Geymsluleiðbeiningar: Geymist á köldum, þurrum stað fjarri sólarljósi. Geymist þar sem börn ná ekki til og sjá ekki til.

Varnaðarorð: Neytið ekki meira en sem nemur ráðlögðum neysluskammti. Ekki ætlað að koma í staðinn fyrir fjölbreytta og fæðu og heilbrigðan lífsstíl. Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsfólki ef þú ert barnshafandi, með fæðuóþol, með undirliggjandi sjúkdóma eða tekur lyf.

Framleitt og pakkað í GMP vottaðri verksmiðju á Ítalíu fyrir: huemeno ehf.