Hoppa yfir valmynd
Vítamín

Járn

Amino Jern Forte 50mg 100stk

AminoJern Forte 50 mg byggir upp járnbirgðir líkamans á skilvirkan hátt án óþæginda eins og ógleði eða meltingarfæratruflana.

3.998 kr.

Vöruupplýsingar

AminoJern Forte 50 mg byggir upp járnbirgðir líkamans á skilvirkan hátt án óþæginda eins og ógleði eða meltingarfæratruflana. Í AminoJern er sérstakt einkaleyfisvarið járnefnasamband sem kallast Ferrochel. Í Ferrochel er járnsameindin umkringd tveimur amínósýrum, einni á hvorri hlið sem mynda svokallað tvípeptíð. Þegar þú tekur inn þetta form af járni mun líkaminn þekkja tvípeptíðið sem frásogast mjög auðveldlega í gegnum þarmavegginn og járnið fær að fara sem einskonar laumufarþegi með. Þegar upptaka hefur átt sér stað, skilja amínósýrurnar sig frá og járnið tilbúið til notkunar. Þannig verður upptaka járnsins betri en á almennum járn bætiefnum og magavandamál úr sögunni.

Notkun

1 tafla á dag

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Ábyrgðaraðili: Æska og heilsa ehf.

Innihaldslýsing

Ferrochel – aminosyrecheleret jern tilsat som ferrobisglycinat, cellulose, dicalciumfosfat, hydroxypropylmethylcellulose, hypromellose, talkum, citronsyre, jernoxid, tværbunden natrium carboxymethylcellulose, siliciumdioxid.