Hoppa yfir valmynd
Vítamín

D-Vítamín

Nordaid K2 +D3 Munnúði 40 dagsskammtar

D3 ásamt K2 í munnúðaformi.

2.698 kr.

Vöruupplýsingar

D3 ásamt K2 stuðlar að betri upptöku. Með honum berast vítamínin beint frá slímhúðinni í munninum út í blóðrásina, ólíkt hylkjum og töflum.

D-vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins og viðhaldi beina og tanna.

K-vítamín stuðlar að viðhaldi beina og eðlilegri blóðstorknun.

ATHUGIÐ: Notist ekki ef þú tekur segavarnarlyf (blóðþynnandi lyf).

Munnúðinn nýtist líkamanum allt að 50% betur en hefðbundnar töflur og hylki, þar sem innihaldið frásogast beint í gegnum slímhúð munnhols og út í blóðrásina.

Inniheldur hvorki sykur né gervisykur Mikil gæði og fyrsta flokks sérvalið hráefni Nútíma loftlausar umbúðir sem tryggja ferskleika og endingu GMP vottað

Notkun

Fyrir fullorðna: 4 úðar á dag gefa 100 μg af K2-vítamíni (133%) og 100 μg (4000 IU) (2000%*) af vegan D3- vítamíni úr grákrókum (Cladonia rangiferina).

Ekki ætlað börnum yngri en 3 ára.

Þegar munnúðinn er notaður í fyrsta skipti er gott að ýta nokkrum sinnum á úðahausinn til að fá vökvann upp í rörið. Hristið glasið fyrir notkun. Úðið undir tunguna eða innan á kinnina. Munið að setja hettuna á úðahausinn og geymið flöskuna þannig hún standi lóðrétt.

Ef munnúðinn er ekki notaður í langan tíma, þá getur hann stíflast. Ef það gerist þá þarf að hreinsa úðahausinn með heitu vatni.

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Ábyrgðaraðili: Avita ehf

Innihaldslýsing

Varan inniheldur hreinsað vatn, glýseról sem bindur raka, xýlítól, MCT-olíu úr kókosolíu, arabískt gúmmí og xantangúmmí sem stöðugleikaefni, sólblómalecitín sem ýruefni, vítamín D3 (kólekalsíferól) og vítamín K2 (menakínón, MenaQ7). Auk þess inniheldur hún kalíumsorbat sem rotvarnarefni, piparmyntuolíu (Mentha arvensis) og sítrónusýru til að stilla sýrustig. Varan er hentug fyrir grænmetisætur og er án laktósa og glútens.