Hoppa yfir valmynd
Vítamín

Melting

Trace Minerals Probiotic 55 billion 30 hylki

55 milljarðar CFU af 10 stofnum góðgerla Hylki sem vernda gerlana og tryggja virkni þeirra – betri upptaka Þarf ekki að geyma í kæli Stuðlar að heilbrigðri meltingu og þarmaflóru

6.698 kr.

Vöruupplýsingar

Probiotic 55 Billion inniheldur 10 stofna af virkum gerlum, þar á meðal 11 milljarða CFU† af Bifidobacterium og 44 milljarða CFU† af Lactobacillus – bakteríur sem finnast að mestu í ristli og smágirni. Þarmaflóra getur minnkað með aldrinum, en með því að taka góðgerla getur þú stutt við heilbrigða meltingu og jafnvægi í þörmum. Varan kemur í sérhönnuðum hylkjum sem vernda gerlana gegn magasýru, svo þeir skili sér á áhrifaríkan hátt til smágirnisins. • Stuðlar að heilbrigðri þarmaflóru • Styður við meltingarstarfsemi

Notkun

Takið 1 hylki daglega á fastandi maga

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Ábyrgðaraðili: Avita ehf

Innihaldslýsing

Sérvalin blanda af 10 tegundum góðgerla:

Lactobacillus acidophilus, Bifidobacterium bifidum, Lactobacillus rhamnosus, Bifidobacterium breve, Bifidobacterium longum, Lactobacillus casei, Lactobacillus plantarum, Bifidobacterium lactis, Lactobacillus bulgaricus og Lactobacillus salivarius vinna saman að því að styðja við meltingarkerfið og viðhalda heilbrigðri þarmaflóru.