
Vöruupplýsingar
Krakka Omega-3 eru tyggjanlegar perlur sem innihalda Omega-3 fiskiolíu auk D-vítamíns.Perlurnar eru með góðu ávaxtabragði og henta börnum sérlega vel en einnig þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að nota fljótandi lýsi eða kyngja perlum.
Notkun
2 perlur á dag (4 ára og eldri)
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Ábyrgðaraðili: Lýsi hf
Innihaldslýsing
Omega-3 fiskiolía, rakaefni (glýseról), gelatín (nautgripa), vatn, sætuefni (xylitol), ávaxtabragðefni, ýruefni (sellulósaduft), þráavarnarefni (náttúruleg tókóferól), D-vítamín (kólekalsiferól). Hver perla inniheldur 600 mg af fiskiolíu. Inniheldur sætuefni.