Vöruupplýsingar
Inniheldur C-vítamín eða askorbínsýra eins og það heitir á fræðimáli, og er vatnsleysanlegt. Inniheldur Rútín sem er þekkt fyrir að styrkja háræðarnar. Fólk sem fær mikið af marblettum tekur oft eftir miklum mun á því við inntöku rútíns. Inniheldur Bíoflavoníðar sem eru andoxunarefni og hjálparefni C vítamíns. Í náttúrunni finnast þessi efni öll saman og saman vinna þau að því að upptaka og nýting verði sem best. Ýmislegt bendir til að þörf mannsins fyrir C-vítamín hafi aukist samhliða aukinni iðnþróun og hinum neikvæða fylgifiski hennar, þ.e. mengun. Hlutverk C-vítamíns til viðhalds heilbrigði líkamans er margþætt. Það hefur mikilvægu hlutverki að gegna við myndun bandvefs, er stór þáttur í vexti og heilbrigði æða, beina, góms og tanna ásamt því að auka frásog járns. C-vítamín hjálpar sárum að gróa og eykur viðnám líkamans gegn sýkingum. Líkaminn þarfnast aukins C-vítamíns þegar hann er undir andlegu eða líkamlegu álagi. C-vítamín er andoxunarefni sem ver frumur líkamans gegn skaðlegum áhrifum stakeinda, en það eru úrfellingarefni sem verða til við efnaskipti í líkamanum. C vítamín er gott fyrir húðina.
Notkun
1 tafla á dag með mat.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Ábyrgðaraðili: Heilsa
Innihaldslýsing
C vítamín (ascorbic acid) 1000mg, rútín (úr fava baunum), bioflavoníðar (sítrus bíoflavoníða komplex). Önnur innihaldsefni: Microcrystalline cellulose, dicalcium phosphate, croscarmellose sodium, stearic acid, rósaber, shellac, silicon dioxide, calcium stearate, talkúm, karób.
