Hoppa yfir valmynd
Vítamín

C-Vítamín

BetterYou C-vítamín munnúði 50ml

C vítamín munnúðinn frá Better You inniheldur að auki grænt te, B2 vítamín sem er gríðarlega mikilvægt vítamín fyrir orkubúskap fruma og selen sem er eitt hinna svokölluðu andoxunar næringarefna líkamans

2.598 kr.

Vöruupplýsingar

C vítamín er án efa lífsnauðsynlegt vítamín og gegnir fjölmörgum mikilvægum hlutverkum í starfsemi líkamans. Flestir þekkja hlutverk þess fyrir ónæmiskerfið og taka það inn sem bætiefni til að efla viðnám líkamans gegn hinum ýmsu kvillum. C vítamín er einnig mikilvægt fyrir myndun kollagens sem er eitt af byggingarefnum líkamans, fyrir betri upptöku og nýtingu á járni úr fæðunni og spilar stórt hlutverk sem verndandi andoxunarefni.

C vítamín blandan frá Better You er frábrugðin flestum C vítamínum á markaðnum þar sem það er í munnúðaformi sem gerir það afar hentugt í notkun. Munnúðinn skilar næringarefnum beint út í blóðrásina í gegnum slímhúð í munni.

Fyrir 1 árs og eldri Vegan, sykur-, glúten- og hveitilaust og án litarefna Óhætt að nota á meðgöngu og meðan á brjóstagjöf stendur Náttúrulegt kirsuberja- og granateplabragð Umbúðir gerðar úr endurunnu plasti úr sjónum

Notkun

1-5 ára 1 sprey, 6-12 ára 2 sprey, 11-14 ára 3 sprey á dag, 15-17 ára 4 sprey, 18 ára og eldri 5 sprey á dag.

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Ábyrgðaraðili: Artasan ehf